Ái. En á góðan hátt.
Handgerðar eldsósur fyrir fólk sem vill meira en bara sterkan hita.
Af hverju „Ái Sósur“?
Nafnið varð til þegar dóttir mín spurði hvað ég hefði sett út á matinn minn.
Til að útskýra hvað eldsósa væri sagði ég eitthvað í áttina við: „Þetta er sterk sósa sem gerir ái í munninum.“
Eftir það fóru sósurnar einfaldlega að heita Ái Sósur.
Í dag eru Ái Sósur heimagerðar gerjaðar eldsósur þróaðar í litlum skömmtum með áherslu á bragð, jafnvægi og karakter.